Superbarbie’s Weblog

Úr svíni í skvísu! ;o)

Dagur 54: Er að passa núna ..

Posted by superbarbie á október 3, 2007

Ég tel mig vera frekar ómögulega, ég er að passa og var að fá mér 2 litla þrista+2krítar+5smarties

Mataræði dagsins:

M: 2 bananar + sykurskertur appelsínusvali
MH: 1 skyr (sykrað)
H: 1 skál af grjónagrauti + 4 sneiðar slátur
MH: 1 speltbrauðsneið með kotasælu og skinkusneið *2 litlir þristar, 2 krítar & 5 smarties*
K:

Dagurinn er því miður ekki lengra kominn, en okey stopp hérna, þetta er búinn að vera fínn dagur svo þvo þarf ég endilega að eyðileggja allt með þessari græðgi minni. Nú mun ég komast aftur á skrið ;) ég lofa! fer bara út að skokka í kvöld til að bæta fyrir syndir mínar :)

Skrifa aftur í kvöld, segja ykkur hvort ég hafi ekki örugglega farið út að skokka og sleppt öllu nammi héðan af.

Takk fyrir að lesa

~superbarbie~

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »

Dagur 53: VIGTUN .. Fer núna út að hlaupa!!

Posted by superbarbie á október 2, 2007

Ég fer núna út að hlaupa í hálftíma!! Ég ætla að grennast, ég er svo ohh er svo pirruð á sjálfri mér. Núna ætla ég, ég ætla að standa mig .. morgundagurinn verður eftirfarandi ..

Vakna og fæ mér hafragraut
morgunhressing: banani
Hádegismatur: Grjónagrautur
Svo fer ég að passa klukkan 3
Er að passa til 8, þannig að ég fæ mér ekki óhollt, heldur bara einbeiti mér að fá mér hollan kvöldmat, ég má ekki falla! Svo þegar ég kem heim klukkan 9 eða hálf 10 þá dríf ég mig út að skokka :) Í lagi að skokka frekar hratt í korter þá eða ef ég verð ekki of þreytt, þá í hálftíma .. svo er semsagt vigtunardagarnir mínir eru á eftirfarandi dögum því að ég stenst ekki heila viku í bili.

Þriðjudagar & Laugardagar

:) Glæsó .. var 65,1kg í morgun

Semsagt 100gr í mínus, ágætt .. ágætt :)

Hlakka til að heyra í ykkur á morgun og segja ykkur hvernig gekk :)

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »

Dagur 52: Ágætur dagur en ek eins og planað

Posted by superbarbie á október 1, 2007

Mánudagur 1.10.2007
M: 4 finncrisp með osti + djúsglas
MH: 1 banani
H: 1 skólasleifasklurkur af bláberjaskyri með miklum rjóma + 2 brauðsneiðar með smjöri og skinku
K: Margar kjötbollur og steikt raspabuff + tómatsósa

Semsagt dagurinn í dag, en ég á ekki að standa mig svona illa, allt í lagi þarna en kvöldmaturinn, ég á ekki að borða kvöldmat það er ekki gott fyrir mig … :(

Okey ég fer út að hlaupa á eftir .. ef ég hef tíma, þarf að læra .. garg ég er alltaf með einhverjar afsakanir ..

see you when I see you

~Superbarbie~

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »

Dagur 50: Þessi dagur verður ÆÐI!!

Posted by superbarbie á september 29, 2007

Okey ég er að plana daginn og hann mun verða æðislegur!!

Semsagt, var að vakna og ætla að plana þetta hérna:

Laugardagurinn 29.9.2007

Kl: 11.30 ~ Fara út að hlaupa í hálftíma
Kl: 12.00 ~ Borða 2 Spæld egg í Pam spreyji + 1/2 niðurskorið epli + vatnsglös
Kl: 13.00 ~ Ganga/skokka niður í sundlaug og synda 20-30 ferðir
Kl: 14.00 ~ Ganga heim
Kl: 14.10 ~ Hringja í stelpurnar (Förum saman í Ikea)
Restin af deginum er ekki plönuð, við förum saman í Ikea, ég þarf að passa að freistast ekki á ís  & pylsu, við setjumst bara upp og fáum okkur eitthvað, ég kannski fæ mér grænmetisbuff? Er það ekki hollt eða er þetta bara feik hollusta?
Svo fæ ég mér ekki nammi í kvöld þar sem við stelpurnar ætlum ábyggilega að gista hjá mér :) Gaman Gaman

Takk fyrir að lesa bloggið mitt

~SuperBarbie~

GARG!! Strax búið að eyðileggja planið, stelpurnar hringdu og vilja fara sem fyrst .. þannig að ég get ekki farið út að hlaupa eða neitt!! Ætla þá að vera sérstaklega dugleg í mataræðinu í dag!!

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »

Dagur 48: Vondur, mataræðislega en góður hreyfingarlega :)

Posted by superbarbie á september 27, 2007

Jæja ég labbaði mjög rosklega með tösku á bakinu í 50 mínútur ..

En ég borðaði eftirfarandi:

Kornarúgbrauð í morgunmat, aðeins meira en hálft með skinku og osti :)
AB-mjólk 10:20 :/
Rúnstykki með osti, skinku og pitsasósu grillað :/
Fiskur og kartöflur stappað saman með miklu smjöri :/
Lagsanga :/

Mun ábyggilega borða nammi og snakk, drekka cult og svona í kvöld og í nótt sem er hræðilegt! Því að ég er að fara að læra með vinkonu í stærðfræði rosalega mikið frá klukkan svona 11 og þar til í nótt .. :) Rosalega duglegar, en ég ætla að reyna að minnka þetta og drekka vel af vatni, og þar af leiðandi vera sífellt mígandi, skera niður ávexti, borða smá nammi og poppa light popp .. þarf sykur til að halda mér vakandi samt .. og ég keypti cult handa vinkonu minni en guess what!!! CULT LIGHT HANDA MÉR, 6kkal í 100gr keypti lítinn fyrir mig en stórann sykraðan fyrir vinkonu mína .. Ég er svo stollt af mér, en ég verð að hætta þessu nammiáti lon og don ég vil grennast meira það er svo gaman þegar fólk er alveg, vá hvað ertu búin að grennast mikið? Og þegar maður passar í 4 af gallabuxunum sem eru neðst í skápnum mínum þar sem ég geymi of litlar buxur, þar eru 7 stykki eftir af 11 :) :) Rosalega happy :’D

Jæja hef þetta ekki lengra, reyni að passa mig í kvöld .. heyri í ykkur, takk fyrir stuðninginn

~SuperBarbie~

Skrifað í Ágætir dagar | 1 ummæli »

Dagur 47: VIGTUN

Posted by superbarbie á september 26, 2007

Hæ, vildi bara segja að ég var 65,2 kg í morgun, semsagt þyngdist um 500gr sem ég er sátt við því að seinasta vika var ekki góð! Mun hafa betri viku núna :)

Heyrumst

 

~SuperBarbie~

Skrifað í Vigtun | Leave a Comment »

Dagur 46: Þetta gengur ekki!!

Posted by superbarbie á september 25, 2007

Í dag gekk mér ágætlega fyrri partinn, ég fékk mér hafragraut með ferskum ávöxtum í morgunmat, svo fékk ég mér epli og 1 hafrakex með osti 10:20, svo í staðinn fyrir kjötbollur með sósu, baunum og rauðkáli fékk ég mér salatbar úr Hagkaup, rosalega góður en svo einhvern veginn seinni partinn þurfti ég endilega að fá mér: Nammi, Caramel Cadburry’s & Pylsu með steiktum, tómatssósu og einni rönd af remúlaði!! Hvað er að mér!

Ég veit fyrir víst að ég mun þyngjast, á morgun er samt ávaxtadagur og hann verður alltaf á miðvikudögum en ég er svo fúl út í sjálfa mig ég meina það! En ég verð bara að halda áfram núna, þarf að læra fyrir próf þannig að ég get ekkert farið að hreyfa mig. En ég sver að næsta vika verður ekki svona! Í næstu viku ætla ég að grennast, ekkert stíga á vigtina og hreyfa mig!

Hef lítið meira að segja nema hvað ég er pirruð þá fer ég bara að bulla, nema að ég var í fréttunum! :) Leit út eins og fáviti hahahaha

See you when I see you

~SuperBarbie~

Skrifað í Slæmir dagar | 2 ummæli »

Dagur 45: Ég skil ekki hvað gengur að mér!

Posted by superbarbie á september 24, 2007

Í dag gekk mér rosalega vel í byrjun, vaknaði og fékk mér svona 2 mínútnu hafragraut, svo klukkan 10:20 fékk ég mér svona appelsínugult skyr.is sykurlaust, í hádeginu var stafasúpa og gróf bollubrauð. Allt fínt með það ég segi svona sirka 400-450 kkal fyrir þetta. En svo þegar ég skrepp aðeins fæ ég mér um 6-7 krítar og 5 lakkrisal, semsagt ég veit ekki einu sinni hvað eru margar kkal í því. Vitið þið það eða getið þið giskað? Ég giskaði á 50 í hverjum mola og þá fæ ég út gríðarlega stóra tölu og ég vildi bara ekki trúa því.

Það eru bara 2 heilir dagar eftir af vikunni minni, vigtun á fimmtudagsmorguninn og ég veit ekki hvað ég er að gera að standa mig svona illa. Þarf að reyna að standa mig betur, en það er mikið að hlakka til samt núna :)  Á morgun fer ég í búð og kaupi FULLT FULLT FULLT FULLT af ávöxtum, jarðaber, vínber (til að frysta) hindber og margt fleira, ætla að smakka kumqaits, ef það er skrifað svona annars hehe. En allavega þá er það fyrst á dagskrá, svo fer ég með það heim, set í mini ískápinn sem ég er með inni hjá mér, nema vínberin og hann er svo lítill að  ég vona að þetta komist þar inn *fliss* en ástæðan fyrir þessum ískáp er sú að ég vil ekki þurfa að horfa uppá allan matinn og freistingarnar. Ég mun hafa inni hjá mér það sem ég mun borða yfir daginn og það er það eina sem ég má borða, þannig að ég plana kannski, skyr.is, banana, vínber, hrökkbrauð með smurosti. Þá set ég þetta allt inní ískápinn og borða svo yfir daginn en það verður auðvitað aðeins meira á listanum en þetta var bara dæmi.

Svo fer ég ábyggilega í sund núna í kvöld, og ég fer í sund annað kvöld. En svo á miðvikudaginn fer ég að passa hjá vinkonu minni því hún er að skreppa í saumó og ég þarf virkilega að passa mig þar því hún á svo mikið af svona gómsætu nammi og þannig. Ég tek bara með mér ávexti og svona gott, sker niður grænmeti og geri púrrulauksdýfu og gæði mér á því. Fá ég hlakka bara rosalega til!

En svo er auðvitað tilhlökkunarefni að vikta mig á fimmtudaginn, svo á laugardaginn má ég fá mér 1-2 skálar af poppi, svona morgunmatarskálar. Þetta er pop light þótt ég viti ekki hvort það geri gæfumuninn. Ætla að prufa að vigta poppið á laugardaginn sem ég veit að er heldur létt og sjá hvað ég innbyrgi margar kkal úr þessu popp dæmi ..

Hef ekki mikið meira að segja í bili, kannski seinna í kvöld .. :)

See you when I see you

~SuperBarbie~

Skrifað í Slæmir dagar, Uncategorized | 1 ummæli »

Dagur 44: Stóðst ekki alveg daginn + I shock you

Posted by superbarbie á september 23, 2007

Jæja í dag stóðst ég ekki alveg áætlunina mína, ég fékk mér 3 (snittubrauðsstærð) rúsínu/hungangsbrauð með skinku, osti og smá túnfiskssalati. + rjómaís á select, stór.

Ég ætla að fara út að labba í smástund núna á eftir og reyna að ná smá af þessu rugli af mér, ég vildi að ég væri ekki svona óþolinmóð, vona að það fari að koma að því að það verði ekki svona erfitt að sleppa því að vigta mig svona oft á viku.

Ætla að skoða fleiri wordpress síður, endilega látið mig vita ef þið vitið um einhverjar þannig síður svona átaks :)

*huggles*

~SuperBarbie~

Skrifað í Slæmir dagar | 2 ummæli »

Dagur 44: Betra mataræði en lítil hreyfing

Posted by superbarbie á september 23, 2007

Okey svo í dag .. þá mun ég geta tekið á mataræðinu en ég mun ekki geta hreyft mig mikið ég er að vinna núna frá 12 til klukkan að verða 7 .. verð þá komin heim um hálf 8 leitið. Held að ég muni þá reyna að fara í göngutúr í kvöld í svona hálftíma með ipodinn minn, þá er komin ágæt hreyfing. Verð auðvitað mjög þreytt eftir daginn samt.

Mataræðið í dag verður eftirfarandi, og það mun standast:

Morgunmatur: Hafragrautur með kanil og gervisykri + 1/2 banani skorinn í grautinn
Kaffi: Banani + vínber
“Kvöldmatur”: Banani/skyr/ávöxtur

Allt í lagi þannig að þetta er ekki mikið af caloríum í dag en það er bara út af því að það eru sérstakir kaffitímar í vinnunni svo að ég get ekki borðað svo mikið þar því þá er ég að springa og get ekki unnið.

Segi þetta gott í dag :)
~superbarbie~

Skrifað í Plön | 1 ummæli »

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.